Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Komin nótt og ég á að vera farin að sofa..en bara sona smá fyrir svefnin:)

28. janúar 2009 klukkan 00:13
Jii minn eini..bara búnir 28 daqgar af 2009.
Ég er komin aftur á klakann og byrjuð í skólanum og útskrifast í maí!
Ætla bara að nefna það strax hér og nú að ég nenni ekki að skrifa um kreppuna eða ástandið á Íslandi hér og nú. Hver veit um að ég geri það seinna en eins þá nenni ég ekki að ræða þetta á blogginu. Er í stjórnmálafræði í skólanum svo fæ nægjan dosis þar;) Annars bara allt fínt að frétta. Mikið að gera skóli og vinna. Er að berjast við að koma mér í ræktina, en er byrjuð á Herbalife újeeeee... hehe..
Michael kemur í febrúar:)
Ætla að nota tækifærið(bara sona að því það skoða þetta blogg svo margir) að óska nokkrum aðilum til hamingju:)
Þóra og Gummi með nýju prinsessuna sem hefur fengið það fallega nafn Sædís Heba :)
Eddu og Smári sem eiga von á frumburði í apríl :)
Og svo öllum þeim sem hafa átt afmæli og sérstaklega þeim sem ég gleymdi..
Er svo svakalega gleymin þessa dagana og utan við mig.

Annars er bara komin svefntími svo ég ætla upp í rúm með bókina mína eftir hana Marian Keys, En charmerende mand. Algjör kvennabók sem maður alveg getur svólgrað í sig. Þetta er eiginlega soldið sona verðlaunin mín að loknum góðum degi þó ég hafi verðlaunað mig nokkrum sinnum eftir síður en svo góðum degi.. Uss Uss... En þá er þetta sona greyið ég oooooo... hihi

Kveð að sinni
Kær kveðja
Védís


http://www.funmunch.com/graphics/good_night/graphics/good_night_4.gif
Védís Einarsdóttir

Jólin nálgasst:)

21. desember 2008 klukkan 23:14
VIL ÓSKA ØLLUM GLEDILEGRA JÓLA OG FARSÆLDRA Á KOMANDI ÁRI
TAKK FYRIR ALLT LIDID OG SÉ FRAM MED TILHLØKKUN TIL ÁRSINS 2009
KÆR KVEDJA VÉDÍS:)
Védís Einarsdóttir

Bitur í þessu ógeðisveðri í kreppunni á Íslandi

18. nóvember 2008 klukkan 16:26
Jii minn eini...er búin að vera eitthvað svo bitur og leiðinleg í dag...sver ég held að þetta sé eitthvað að ganga. Hef lesið hér og það svona biturleika. Kanski er þetta veðrið en þegar maður sér ekki sólarglætu heiland dag þá er ekkert skrítið að maður verður smá deppaður! Bara þessi vika og næsta svo byrja prófin, svo 5 daga frí svo DK í 21 daga. Júhúúúúúúúú... Hlakka svo til:o)
En jájá sit á Muffin Bakery að reyna að læra fyrir NÁT próf.
En svo ætla ég að heimsækja hana ömmu mína. Svo held ég bara að ég fari heim og gefi skít í meiri lærdóm í dag, verð bara bitur og þunglynd í þessu leiðindaveðri.
Bitrakveðjur
Védís
Védís Einarsdóttir

Mánudagur

27. október 2008 klukkan 12:38
Ný vika með nýjum tækifærum:)... Nánar
Védís Einarsdóttir

Ísland

19. október 2008 klukkan 15:46
Jæja...komin til Íslands... Byjuð í skólanum og sit núna og er að berjast við að gera ritgerð í félagsfræði... Úff...
Michael minn er komin og byrjaður að vinna á English Pub.. Er einmitt í þessum töluðum orðum að vinna. Ég er líka byrjuð að vinna á sambýli. Jámm annars er bara mikið að gera..
Það er voða notalegt að vera komin heim, en sakna líka dk, köben íbúðina mína, eddu, vinina og fl. En líka yndislegt að vera heima og sjá famelíuna og vinina hérna þegar ég vil. Gat samt kanski ekki flutt á meiri óheppilegri tíma, beint í kreppuna. Sem betur fer eigun við pening í DK þar sem DanskeBank er búin að loka á allar millifærslur til á frá Íslands.
Ég verð í dk um jólin og áramótin:) Svenninn minn flytur til dk og inn í íbúðina okkar 25 okt. Úff á eftir að sakna hans mikið hérna.
En jæja þetta var bara pínu update...verð að halda áfram að skrifa og skrifa og skrifa...
Knús
Védís           
Védís Einarsdóttir

HEITT

28. júlí 2008 klukkan 08:34
Jæja ég er back to work!
Svaf 2 tíma í nótt, því mér var svo heitt og ég gat ekki sofið:(
Vá hvað ég er ekki að nenna að vera hérna það er 30 stiga hiti úti og mig langar eiginlega bara niður á strönd og baða mig og sóla;) En en er stökk hérna.

En skrifa meira á eftir...
Ætla að fara að fá mér vatn....er þyrst og mér er heitt....

Hitakveðjur..
Védís Einarsdóttir

SOMMERLOVING

21. júlí 2008 klukkan 16:57

Jæja thá er mín komin í sumarfrí... Get ekki hætt ad tala um thad;) hehe.. látidi mig vita ef thid erud komin med óged á ad heyra thad... Hehe...
Vid erum á fjóni núna í algjørri afsløppun:) Rigndi um helgina og i dag en núna er búid ad stytta upp og sólin mætt og á víst ad ver bóng og blída restinni af vikunni....ahhh næssss:)
Ætlum ad fara heim á midvikudaginn og thá bídur mín smá verkefni:
Bankinn
Skatturinn
Ræktin(hringdu i mig og spurdu akkuru eg ekki hefdi mætt i dágódan tíma og hvort thau ættu nú ekki ad panta fyrir mig thjálfara til ad koma mér í gang...jújú)
Annars ætla dagarnir mínir bara ad fara í sólbad og hreingernigu heima....:)
En thad eru samt nokkrir hlutir sem mig langar ad gera....:
*Fara til Barcelona og hitta Eddu og Soffí, fara á strøndina og versla og drekka sangría;)
*Fara í klipp&litun
*Kaupa mér cellulitkrem(uff sá thad í morgun thegar ég fór í sturtu...ekki fallegt...)
*Go Shop amok(ef ég ætti pengs)
*Borga visareikninginn minn...........
*Leika túrista um Køben...;)

En thad er alltaf eitthvad er thaggi... ;)
En er samt bara sátt, hamingjusøm, og ánægdi í augnablikinu:)
Vá pælidi i thví hvad frí getur gert fyrir mann...hehe... Kanski lika ad thvi ad vinnan min er ØMURLEG og er ALVEG ekki ad NENNA henni MEIRA!!!!!!!!!!!!!!
En thad er allt i lagi thvi brádum kemur hun eddan min aftur og thad er gaman...:)
En jæja ætla ad fara ad hjálpa til vid eldamenskuna hérna...
Já BTW langar lika ad fara ad sja MAMA MIA...:)

Kossa&Knúsar
Lukkulega Védís í Sumarfíi...hehe...:)

Védís Einarsdóttir

SUMARFÍIÐ AAAAAALLLVEGA AÐ KOMA!

17. júlí 2008 klukkan 13:01

Jæja...
Hvað er að frétta?
Héðan er allt gott að frétta:)
Ásdísin mín kom 5 júlí og fór 13júlí! Það var rosa gaman og yndislegt að fá hana í heimsókn og skemmtum við okkur konuglega hér í Kongens Köbenhavn:) Hjörtur var líka staddur í köben og kom í heimsókn á laugardagskvöldið ásamt frænda sínum!
Annars er ég að vinna næst síðasta vinnudaginn minn fyrir frí! Og ég get bókstaflega ekki beðið eftir að komast í frí! Vá hvað ég þrái frí! Ætla bara að slappa af og njóta þess að vera með sjálfum mér og fara í göngutúra, bankann, skatinn og ordna pínu af þessum hlutum sem þarf að gera áður en heim er haldið! Miðinn minn er bókaður og þurfum að fara að bóka miðann hans Michaels, en hann kemur einum mán á eftir mér!
En annars þarf ég að vinna pínu núna... en læt nú heyra í mér soon!
kv. Véza

Védís Einarsdóttir

>FRÉTTIR<

02. júlí 2008 klukkan 15:43
Jæja sit í vinnunni minni og er vonandi að vinna síðasta yfirvinnutímann minn hjá þessu fyritæki! Serverinn var bilaður í gær og á mánudaginn þannig að við komumst ekki inn á nein driv, mail, gátum ekki prentað, faxinn virkaði ekki og gátum ekki nálgast neinar sölutölur! Þannig að það er mikið sem þarf að vinna upp! Þannig að ég ákvað að gera það í dag og þá er það búið og þá ætla ég ekki að vinna meiri yfirvinnutíma! En það er nátturulega tvöfald vinna þegar ég geri allt administrífa vinnu á meðan yfirmaður okkar er í fríi en hann sem er teamleader á móti lætur sér bara nægja með það sem hann er með af mailum og requestum! Á meðan hann er í bíó og úti að borða í kvöld sit ég og klára alla vinnuna okkar! Já að því við erum með sameiginlegar skyldur....aaaaarrrrrrrrrrrrggggggg varð bara að fá útrás á þessu... Já já og segiði svo bara akkuru talaru ekki við hann en er búin að gera það mörgun sinnum en vandamálið er að ég treysti honum ekki í hlutina því þá verða þeir ekki gerðir eða þeir verða gerðir í næsta mánuði!!!!!! En en WHATEVER fregnir eru þessar: ÉG KEM TIL ÍSLANDS Í SEPTEMBER OG VERÐ FRAM Í MAÍ :o) Er að koma heim að klára skólann. Michael kemur með mér í nokkra mánuði en hann er að fara æi skóla eftir jól svo þá fer hann heim! Vííí´ég hlakka rosa til að koma heim og fara í skóla! Nenni ekki að vinna meira...(fulla vinnu) langar að vera skólastelpa aftur:)
Þetta voru nú helstu fréttir og nöldur í dag verð að klára þetta allt saman í vinnunni svo ég geti farið heim í hvíld

Knúsar Vésa
Védís Einarsdóttir

Sunnudagur!!!!!!!!!!!!

22. júní 2008 klukkan 16:09
Jæja magaveiki heimilisins er skárri enda hefur ekkert kaffi veriðið í bóði í dag! Kaffi er ekert rosalega hollt og ég skil ekki akkuru maður drekkur það! Mér finnstt persónulega kaffi huggulegt en get ekki sagt að ég sé eitthvað háð því þannig að ég er búin að ákveða að drekka bara einn bolla á dag (drekk samt eiginlega ekki meira en það) en mér finnst morgnarnir á kaffi í vinnu ekki jafn góðir morgnar! Fórum í Jysk í dag í grenjandi rigningu að kaupa gardínur! Íbúðin er sauna á daginn þar sem sólinn skín beint inn um gluggann og hitinn verður óbærilegur. En nenntum ekki að fjárfesta í neinu almennilegu þar sem við fáum nýja gluggla í haust! En svo fórum við í Fakta sem er án gríns ein leiðinlegasta matvöruverslun í hele Danmark og minnst úrval. Keyptum í snarl til að borða og ég keypti mér hafragraut til að borða í morgunmar sem ég geri nánast á hverjum morgni...svo mamma hollustan er alveg í fyrirrúmi hjá mér allavega... Nenni ekki að vaka yfir Michael hvað hann étur yfir daginn... En reynum samt að borða hollt í kvöldmat... En vá hvað það er þreytandi að ákveða alltaf á hverjum degi hvað maður á að éta í kvöldmat! Þannig að ég er búin að ákveða að verða rík einhvern daginn og ráð mér kokk og þjónustu fólk og taka allar ákvarðanair hvað ég á að borða og klukkan hvað og elda og laga til fyrir mig og það besta er að ég ætla að vera með persónulegan einkaþjálfara líka...íííí hvað ég hlakka til! Þetta er kanski soldið shallow en shit hvað þetta væri samt næs!;)
Núna erum við bara að hanga aðeins en ætlum í smá tiltekt núna mjöööög bráðum þegar ég nenni að standa upp......

Á morgun en ný vika..ný vinnuvika..úff hvað mig langar í sumarfrí:o) En ekki mikið eftir, svona lítur næstu dagar vikur mánuðir út hjá mér:

Mánud 23 júni: Sankt Hans, bál og grill í fælledparkinn ef veður leifir.
Fimmtudagur 26 júni: Edda fer til íslands, ætlum út að borða og svo fylgi ég henni á flugvöllinn, sé hana ekki fyrr en í ágúst aftur:/
Þriðjudagur 1 júli: Er ég að fara að hitta fjármálaráðgjafa...:) Hún ætlar að nota mig sem dæmi í bókinni sinni og ég fæ ókeypis ráðgjöf:)
Laugardagur 6 júli kl 06:00am: Ásdísin mín kemur:)
Sunnudagur 13 júlí: Ásdís fer heim
Föstudagur 18 júlí kl 16:00: Ég er komin í viku frí og þarf að Stússast rosa mikið! Langar að skreppa nokkra daga til Barcelona að heimsækja Eddu og Soffíu!

Ágúst: Edda kemur heim held ég fyrstu vikuna og fer að vinna með mér á Hertz aftur:)
Laugardagur 23 Ágúst: Förum til Spánar
Laugardagur 30 Ágúst: Komum heim frá spáni
SEPTEMBER: HEIM TIL ÍSLANDS OG Í SKÓLANN


SHHHIIIITT TÍMINN LÍÐUR ALLT OF HRATT

En Dana var að hringja ætla að spjalla aðeins við hana... Svo later....
Védís Einarsdóttir

Prófíll

  • Nafn: Védís Einarsdóttir
  • Staður: Østerbro
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: Ég heiti Védís og er 24 ára.. Meira um mig í "aðeins um mig..."
  • Annað: Fullkomin vinátta er vinátta góðra manna sem eru gæddir sömu dyggðum, því þeir óska hvor öðrum heilla af því þeir eru góðir og þeir eru góðir í sjálfum sér. Þeir sem óska vini sínum heilla sjálfs hans vegna eru mestir vinir, því þeir gera þetta eðli sínu samkvæmt en ekki tilfallandi. Þess vegna endist vináttan svo lengi sem góðleiki þeirra og dyggð endast. Aristóteles (384-322 f.Kr.), Siðfræði Níkomakkosar. (þýð. Svavars Hrafns Svavarssonar)

Nautið

Nautin eru fædd að vori, þegar daginn er tekið að lengja og náttúran að vakna til lífsins. Vorið er frjósamur og gjöfull tími vinnu og undirbúnings fyrir sumarið en jafnframt tími til að njóta vaxandi veðurblíðu og grænkandi náttúru. Þetta endurspeglast í upplagi Nautsins, sem sambland af vinnugleði og leti, eða því að skapa og njóta. Hið dæmigerða Naut er því duglegur nautnamaður.

Könnun

MYNDIRU FREKAR VILJA VERA FROSKUR EÐA ÖND?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...